You laugh at me for beeing different I laugh at you for beeing the same.

bLind

12.11.2007 13:30:39 / blind

Búin að flytja

ákvað að kaupa nýja íbúð fyrir bloggið mitt þar sem mjög gott herbergi fyrir myndirnar okkar og svona skemmtilegt.  Þar verður áfram bloggað um hitt og þetta.. og allt mjög skemmtilegt eins og alltaf.  endilega kíkið yfir á....

 www.123.is/berglindasgeirs

 Sjáumst þar!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 22:47:02 / blind

vá nóg að gera..

uss ég er eiginlega að drukkna. er búin að glósa í allan dag og er farin að sjá fyrir endan á þessum glósum, þarf allavega að hafa nóg tilbúið til að taka með mér næstu helgi til Amsterdam, verð bara að hafa einhvern smá lærdóm þar þar sem prófin eru bara á næsta leiti!  Ég er svona eins og maðurinn sem fór til sálfræðingsin út af vetrardekkjunum, voðalega hissa að það væri komin vetur í nóvember!! ég meina við sem búum á íslandi! og ég voðalega hissa að það séu að koma próf,, samt veit ég alveg að þau koma í endan á nóvember og í byrjun desember!!

Brúðkaupsundirbúningur er líka komin aðeins af stað og er það auðvitað bara gaman verð ég nú að segja :haha:

jæja, best að koma sér í ból það er víst skóli á morgun,, já og vinna annað kvöld! og þarf að fara og kanna með bíl hjá B&L, klára glósur,, ok auðvitað troða inn einhverjum brúðkaups plönum og skemmtilegu ;) vei vei


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 15:26:34 / blind

pæling..

oft hef ég heyrt að giftingardagurinn sé sá dagur sem konur hugsi hvað mest um, allt frá blautu barnsbeini er því beint að okkur hversu frábær og skemmtileg gifting sé og við förum í huganum að skipuleggja daginn, löngu áður en við getum hugsað til þess að eiga mann, hvað þá kærasta.  jú, auðvitað hef ég hugsað um að einhvern tíma muni ég gifta mig, vangaveltur um sumarbrúðkaup í garðinum hjá mömmu og pabba, vini og ættingja út um allt í móanum að taka þátt í þessum degi... svo hugsa ég um brúðkaup á einhverjum skrítnum stað, kannski úti á Flankastöðum.. úti í móa, í hvalaskoðunarbáti úti á ballar hafi.  ég passaði mig nú samt alltaf að hugsa þetta nú ekki of mikið enda ekkert á dagskránni að gifta sig strax.

Ætli hlutirnir breytist mikið við það að giftast?  ætli maður sé eitthvað öðruvísi þegar maður er eiginkona heldur en þegar maður er bara kærasta? öðruvísi kröfur? minna kynlíf? (nei ég meina maður hefur heyrt það!!) ... þau á FM voru að tala um það í gær (minnir mig) stelpur og strákar byrja saman og vita af kostum og göllum hvers annars, en munurin á stelpum og strákum væri sá að stelpur vona að strákarnir breytist... (sumir kalla það að þroskast) en strákarnir vona að stelpurnar breytist bara ekki neitt,, en svo verður það oft þannig að stelpurnar breytast en strákarnir breytast ekki.  veit ekki alveg hvað er til í þessu, ætli þarna sé t.d. verið að horfa á barneignir, þar sem móðureðli kvenna er eflaust mun sterkara en hjá mörgum körlum.  íslenska karlmennskan og allt það.. veit það ekki.  t.d finnst mér við Davíð vera voðalega samstíga, bætum hvort annað upp ef svo má að orði komast, hann heldur mér á jörðinni og mér tekst stundum að æsa upp í hann einhverja ævintýramennsku, en sammála erum við nú samt lang oftast, allavega um stóra hluti, við erum til dæmis sammála um það að gifta okkur 21. júní 2008!!

þannig er nú það :haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 11:27:07 / blind

Blár!

það er komin nýr mánuður, að vísu soldið síðan en ég hef bara ekki mátt vera að því að blogga síðustu daga, en blátt verður það þennan mánuðin, þar sem blátt er svona pínulítið rómantískt, blátt er litur frosts, blátt hefur örugglega á einhverjum tímapunkti verið uppáhaldslitur flestra, og svo kemur nú oft blátt á eftir bleiku.. lesist bleikt og blátt ;)

blár var einu sinni mikill uppáhaldsliturinn minn og var ég alltaf í einhverju bláu.  Litaþema í fermingunni minni var t.d. blár, blár kjóll, blátt hárskraut, blátt kerti? man ekki alveg en það var allavega mikið blátt, þó svo að það verði örugglega ekki liturinn í brúðkaupinu mínu. 

næstu kvöld verð ég að vinna á vagninum, en svo eiginlega ekkert mikið meir í þessum mánuði sökum Amsterdam ferðar og prófa... arrrggg... prófin eru sko í þessum mánuði!! best að byrja að læra,, á nóttunni þegar ég er búin að vinna :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 21:11:43 / blind

Snjór

hmm dagurinn í dag byrjaði á snjó, á götunum, á heiðinni, fyrir mér, varð að keyra hægt, kom 15 min of seint í tíma!! reyndar ekki í fyrsta sinn sem ég er sein, en þetta er í fyrsta sinn sem ég kem seint en lagði af stað rosalega tímanlega!! ég var í næstum tvo tíma að keyra í Hveragerði í staðin fyrir klukkutíma og korter :)  tíminn var líka skemmtilegur, vorum að greina tré eins og við sjáum þau á veturna.  Notum til þess greiningarlykil á Norsku, það er kannski mesti gallinn, tala nefnilega ekki Norsku.  En við fengum svona lítið orðasafn með og eins og ég sagði þá var þetta bara gaman.

Planta Mánaðarins!

 Litli Eldrunni eða Chaenomeles japonica sem tilheyrir Rósaættinni eða Rosaceae

Hún er allajafna garðskála planta en getur þrifist við sérlega góðar aðstæður og erum dæmi þess að finna hér á landi þar sem hann blómstrar, en þarf þá að vera á sólríkum og sérlega skjólgóðum stað.  Hann er uppruninn í Japan og blómstrar sérlega fallegum appelsínurauðum út í rósbleikum blómum en það er mismunandi milli yrkja.  Þetta er fíngerður, þyrnóttur runni sem getur orðið allt að meter á hæð.  :)
Jæja hafið þið það nú gott elskurnar mínar og njóti þess að vera til!

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 13:02:46 / blind

copy paste

í dag er annar dagurinn á þessari önn sem ég er nánast eins klædd og skólastjórinn okkar, brandarar eins og að við hringjumst á á morgnana er búinir að fjúka og myndataka átti sér stað og læti... við erum sem sagt í kvart gallabuxum, bleikum bol og grárri gollu.  Mjög smart þó ég segi sjálf frá ;)  en.. það sem við vitum og nokkrir aðrir eru að við eigum líka alveg eins sparikjóla.  :haha: hihihi, gaman á næstu árshátíð.

Dagurinn í dag var í smá rugli, við mættum nokkur klukkan níu samkvæmt stundaskrá en svo var ekki tími fyrr en kl eitt svo við unnum bara í verkefnum og höfðum það kósý í matsalnum.  :haha:

En nú ætla ég að fylgjast smá með svo ég hafi nú einhverja glóru í þessari blessuðu rekstrarfræði og áætlanagerð...8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 13:47:03 / blind

næstum komin helgi

jæja það er komin föstudagur eina ferðina enn, og það er sko svoo stutt síðan að það var helgi.  Muniði þegar vikan var ýkt lengi að líða og maður var alltaf að hlakka til helgarinnar, núna fæ ég varla tíma til að átta mig áður en það er komin helgi, mánuðurinn að verða búin og styttist og styttist í Amsterdam og svo PRÓF!! úfff ég ætlaði að vera búin að læra svoooo mikið núna, en finnst ég samt alltaf vera að lesa eitthvað eða skrifa eitthvað, gera glósur,, inn á milli er auðvitað taka til og þrífa, þvo þvott, vera með vinum :)  ... já svo finnst fólki að ég eigi að bæta barni inn í þetta allt saman, þá fyrst verður nóg að gera!! hihihi

Á eftir ætla ég og Davíð að fara í Rvk, hann er núna að vinna og ég er að passa Erni Óla í smá stund á meðan að pabbi hans fór að vinna smá, eee hann er sofandi, annars væri ég nú varla að blogga:) Davíð er að fara að vinna og ég ætla að fara aðeins til Elísabetar vinkonu að dúllast og sjá nýja sófann!! núna vantar bara sjónvarp inn til þeirra og þá eru þau dottin í normið, sjónvarpsgláp í sófanum,,hihi  nei nei ég segi nú bara svona, við ætlum að byrja á jólakortunum líka :)

Margrét og vinkonur eru í Glasgow, það er ábyggilega hundleiðingt hjá þeim, þurfa að vera bara með vinkonum sínum að versla, borða á veitingastöðum og drekka kokteila, össs ég hugsa að ég gæti þetta bara ekki, þvílik leiðindi..(öfund öfund)

Mig vantar nýja skó, botnin er að verða búin í þessum sem ég nota mest. Mig vantar líka úlpu, þessi sem ég nota er orðin svólítið slitin og ljót, ... hmmm hvað er nú langt í Amsterdam :)

PS bleiki mánuðurinn er bráðum búin,, hver getur giskað á lit næsta mánaðar og ástæðu þess að sá litur er litur Nóvember?


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 14:21:04 / blind

miðvikudagur

jæja, ég er komin í Hveragerði, ótrúlega langt síðan að ég var hér síðast, það eru náttla frí og svo eru veikindi og þið þekkið þetta.   En ég er hér nú og er búin að læra helling um toppa í dag, er einmitt næst að fara að glósa um rauðtopp.  Ég er að hugsa um að hafa hér til hliðar alltaf plöntu vikunnar, svona bæði til að hjálpa mér að muna þetta allt saman og til að fræða ykkur kæru lesendur, því hvaða gagn er af þessu netvafri ef maður lærir ekkert nýtt ;)  já ég hugsa að ég dembi mér nú bara í þetta hér á eftir, get það sko ekki núna því það eru fríminótur,, og Margrét er ekki að svara mér á msn!!! ég sem hef svo mikið að segja henni...hihihi gera hana soldið forvitna og athuga hvort hún hafi samband ;) mhuhahaha

jæja kennarinn er kominn!! bæjó


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 22:53:04 / blind

Fallegt

Kannski er þetta voðalega lúðalegt af mér en.. það er mjög langt síðan að ég las þessa sögu fyrst og hún snertir mig enn í dag.  minnir okkur á að vera góð hvert við annað, þetta er fjót lesið svo endilega rennið yfir og geymið söguna hjá ykkur og hugsið um hana næst þegar þið eruð pirruð, reið, sár og lika þegar þið sjáið einhvern sem líður ekki vel, annar málsháttur sem mér finnst líka alltaf soldið góður er "Vertu góð/ur við mig þegar ég á það minnst skilið, því þá þarf ég mest á því að halda.. "

One day, when I was a freshman in high school,

I saw a kid from my class was walking home from school.

His name was Kyle.

It looked like he was carrying all of his
books.

I thought to myself, 'Why would anyone bring home all his books on a Friday?

He must really be a nerd.'

I had quite a weekend planned (parties and a football game with my friends tomorrow afternoon), so I shrugged my shoulders and went on.

As I was walking, I saw a bunch of kids running toward him.

They ran at him, knocking all his books out of his arms and tripping him so he landed in the dirt.

His glasses went flying, and I saw them land in the grass about ten feet from him.

He looked up and I saw this terrible sadness in his eyes

My heart went out to him. So, I jogged over to him and as he crawled around looking for his glasses, and I saw a tear in his eye.

As I handed him his glasses, I said, 'Those guys are jerks. '


They really should get lives.

' He looked at me and said, 'Hey thanks!'

There was a big smile on his face.

It was one of those smiles that showed real gratitude.

I helped him pick up his books, and asked him where he lived.

As it turned out, he lived near me, so I asked him why I had never seen him before.

He said he had gone to private school before now.

I would have n ever hung out with a private school kid before.

We talked all the way home, and I carried some of his books.

He turned out to be a pretty cool kid.

I asked him if he wanted to play a little football with my friends

He said yes.

We hung out all weekend and the more I got to know Kyle, the more I liked him, and my friends thought the same of him.


Monday morning came! , and there was Kyle with the huge stack of books again.

I stopped him and said, 'Boy, you are gonna really build some serious muscles with this pile of books everyday!

' He just laughed and handed me half the books.

Over the next four years, Kyle and I became best friends.

When we were seniors, we began to think
about college.

Kyle decided on
Georgetown , and I
was going to Duke.

I knew that we would always be friends, that the miles would never be a problem.

He was going to be a doctor, and I was going for business on a football scholarship.

Kyle was valedictorian of our class.

I teased him all the time about being a nerd.

He had to prepare a speech for graduation.

I was so glad it wasn't me having to get up there and speak

Graduation day, I saw Kyle.

He looked great.

He was one of those guys that really found himself during high school.

He filled out and actually looked good in glasses.

He had more dates than I had and all the girls loved him.

Boy, sometimes I was jealous.
!
Today was one of those days.

I could see that he was nervous about his speech.

So, I smacked him on the back and said, 'Hey, big guy, you'll be great!'

He looked at me with one of those looks (the really grateful one) and smiled.

' Thanks,' he said.


As he started his speech, he cleared his throat, and began

'G raduation is a time to thank those who helped you make it through those tough years.

Your parents, your teachers, your siblings, maybe a coach...but mostly your friends...

I am here to tell all of you that being a
friend to someone is the best gift you can give them.

I am going to tell you a story.'

I just looked at my friend with disbelief as he told the story of the first day we met.

He had planned to kill himself over the weekend.

He talked of how he had cleaned out his locker so his Mom wouldn't have to do it later and was carrying his stuff home.

He looked hard at me and gave me a little smile.

'Thankfully, I was saved.


My friend saved me from doing the unspeakable.'

I heard the gasp go through the crowd as this handsome, popular boy told us all about his weakest moment.

I saw his Mom and dad looking at me and smiling that same grateful smile.

Not until that moment did I realize it's depth.

Never underestimate the power of your actions.

With one small gesture you can change a person's life.

For better or for worse.

God puts us all in each other's lives to impact one another in some way.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 12:04:49 / blind

Mascarpone!

í gær hugsaði ég með mér, hmmm Íbúðin er spottless, á morgun er frí, ég ætla að vera dugleg að læra fyrripart dags, setja í ostaköku og heitan rétt og fá gesti seinni part... inn í þetta vantaði að fara í búð og kaupa í ostaköku og heita réttinn, en það ætti nú ekki að taka það langan tíma, tölti bara í Sparkaup.  nema hvað... eftir að ég er búin að tölta, búin að keyra og leita í fimm búðum þá er það á hreinu að það er bara ekki til Mascarpone hér í Keflavík!! og nei ekki Njarðvík heldur! ég get svo svarið fyrir það, þannig að gestirnir verða bara að sætta sig við heitan- og Betty Croker :) geri bara vonandi ostakökuna um helgina fyrir þá gesti sem heiðra mig með nærveru sinni þá.

Annars bara allt gott að frétta, glósurnar mínar eiga hug minn allan, og var ég komin framúr klukkan átta í morgun og byrjuð að skrifa, geri aðrir betur :) haha

... reyndar vegna þess að að ég var vakin, en hverjum er ekki sama um það, ég hefði getað haldið áfram að sofa ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 10:55:19 / blind

12.000

jæja hver verður númer 12.000!! það verður spennandi að sjá, tólfþúsundasti gesturinn er vinsamlegast beðin um að kvitta undir í comment-kerfið :) sama þó þú sért einhver ókunnugur, og ef þú villt ekki láta nafn þíns getið, skrifaði þá bara eitthvað sniðugt plat nafn... ok?? allir með, samráð og sátt mhúahahahha

Helgin nálgast og strax farin að banka á dyrnar, eða eins og Ásgeir Kolbeins myndi segja "síminn er strax farin að hringja".. Ég hugsa að ég fari ekki heim til mín eftir leikhúsið, það er útlit fyrir feiknar djamm í Keflavík, með Todmobile sem er náttla BARA gaman, en ég sé nú samt til hversu seint ég kem í víkina. en mig langar!!

Tek svo á móti ykkur í þynkumat á Pulsuvagninum á sunnudag :) ég sko endalaust partý-ljón , fylgi sko djamminu eftir með því að vinna á sunnudegi, hihihi.

ok, IKEA, ég fór í IKEA í gær, og misti mig pínulítið, það er nefnilega komið jólastuff! sko í fyrra fór ég of seinnt og fékk ekki það sem ég var búin að sjá en ákvað að kaupa seinna því það væri enn svo langt í jólin,, jahá ég geri þau mistök sko ekki aftur. það er búið að versla jóla-innpökkunar pappír, stuff til að búa til jólakort, kerti og spil. ég hlakka nú soldið til jóla verð ég að viðurkenna.. hey! svo verð ég búin í próf korter í Desember! svo það verða ENGIN próf í Desember, bara smá verkefni og verknám og svo jólafrí 14 Desember, nice!  verð nú örugglega eitthvað að vinna samt en samt!!

jæja hafið þið það nú sem best krúttin mín og ekki gleyma að tékka hvort að þú sért lucky number 12.000.. :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 15:30:09 / blind

læri snæri,.. garðafræði?

dagurinn í dag er búin að fara í lærdóm, ég ætla nefnilega ekki að læra í kvöld, mér finnst svo gaman að horfa á Exreme makeover home edision,, og innlit/útlit.. sem ég verð að horfa á á plús stöð skjás eins,, mér finnst þessar plús stöðvar snilld!! miklu auðveldara að skipuleggja kvöldið verð ég nú að segja :)

Heimsótti Elísabet og Nonna í gær, það var svona stund milli stríða þar sem það er nóg að gera hjá þeim í vinnunni, fengum við okkur léttan kvöldverð og kjöftuðum svo alveg helling, eins og okkur er von og vísa. kom svo bara seinnt heim til Keflavíkur og kjafaði þar ennþá meira við Davíð, þar sem hann var nýkomin heim.. hann vinnur of mikið, já ég veit! lítið sem ég ræð á því sviði. 

Hlakka soldið mikið til að fara í leikhús á laugardaginn, það er alltaf svo gaman að fara í leikhús. elska það.  svo eru það auðvitað tónleikarnir í lok mánaðarins.. já nóg að gera hjá minni,, langar samt að koma inn eins og einu keilukvöldi þarna á milli, varð alveg sjúk við að lesa bloggið hjá Önnu Þóru. mæli líka með blogginu hjá Rósu Maríu og Sirrý,,haha alltaf nóg um að vera þar og alltaf hægt að læra eitthvað nýtt!!

Davíð kemur aftur seinnt heim svo ég hef það bara náðugt með sjónvarpinu vini mínum, samt ekki nema að ég klári að læra það sem ég er búin að setja mér fyrir í dag :) maður er sko harður við sig inn á milli. já svo er það náttla alltaf to do listinn sem bíður eftir manni, litla herbergið er ekki enn komið í stand, og ég er ekki búin að setja á mig brúnkukrem! já en svona er það nú samt. verð þá bara hvít.

jæja munið að vera góð hvert við annað :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 09:33:46 / blind

Ég er komin..

yfir heiðina!, við erum að tala um að við Guðjón keyrðum framhjá þrem útafkeyrslu/veltu/árekstri!! enda vorum við á um 45km hraða alla leiðina.  Allir bílarnir voru á leið til Reykjavíkur að því sem ég best sá... úfff, ekki gaman, fyrir utan þessa löngu röð sem hafði minndast rétt ofan við litlu kaffistofuna, sem náði alveg að afleggjaranum til Þorlákshafnar!! og vegna vegriðsins var ekkert fyrir þetta fólk að gera annað en að bíða. 

En jæja nóg um það í bili.  við fórum í mat til tengdó í gær, og lumuðu þau á miðum á Andrea Bochelli tónleikana 31. oktober!! við erum nátúrulega bara himinlifandi yfir því, enda frábær tónlistarmaður þar á ferð.  Næsta laugardag er ég svo að fara með Vaginu klúbbnum á Belgiska Kongó, enda ekki seinna vænna að skella sér á þá sýningu, fimmta sýningar ár eða eitthvað?? svo toppum við það með út að borða, og skemmtum við okkur alltaf konunglega við Vaginurnar þegar við erum samankomnar. :haha:

Verkefnaskil og annar lærdómur á svo hug minn allan þegar ég er í fríi,, tala nú ekki um litla herbergið sem er ekki búið að klára!! og kannski skúra, þurrka af rimlagardínunum.. æ já þetta er sældarlíf þegar áhyggjurnar eru ekki fleiri en þetta!


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 10:03:29 / blind

jæja já..

tók þessa líka fínu törn í gær, en... komst nátúrulega ekki yfir helmingin af því sem ég ætlaði að gera. svona er þetta stundum, hugga mig við að það er stutt í helgina.

Hjúkket sjúkket að ég var nýbúin að fara í yfirhalningu, því þegar ég mæti í morgun var myndataka sem á að fylgja viðtali við mig í kynningarbækling fyrir skólan held ég.. vá ég gef bara viðtöl ég veit ekkert hvert þau eiga svo að fara,,er svo mikið selep þið skiljið. :)

Tókum fínt myndamaraþon í gærkvöldi, langt síðan að við leigum spólu síðast. vorum heima hjá Margréti vinkonu, og horfðum á the first born, sem endaði vægast sagt skelfilega og horfðum á Kalda slóð, sem var mjög góð, verst fyrir Davíð hvað við Margrét tölum mikið yfir myndum og pælum og spegulerum.."úú þessi er pottþétt vondi kallinn..".. "hún drap hann eki hinn!!!" og þar fram eftir götum.. já við erum æði.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Amsterdam baby!!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 856 dögum
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti